Atli Fannar... hver annar?
23.09.2005 11:40:43 / atli

http://byggdarendi.blogspot.com http://byggdarendi.blogspot.com http://byggdarendi.blogspot.com http://byggdarendi.blogspot.com http://byggdarendi.blogspot.com http://byggdarendi.blogspot.com http://byggdarendi.blogspot.com http://byggdarendi.blogspot.com

» 0 hafa sagt sína skoðun

06.03.2005 20:44:16 / atli

ja hérna

Skrifa eitthvað hér? hvernig væri það?

Afhverju ætti kettinum þínum ekki að vera drullusama hvort maturinn hans sé stökkur að utan og mjúúúkur að innan? er búið að gera einhverja könnun meðal katta? eru kettir í því að hringja í aðra ketti og spyrja "hvað finnst þér vanta í kattarmat í dag?" "jaaa... ég væri til í stökkan að utan og mjúkan að innan" ... hahh... og hvernig láta þeir kattarmat líta svona girnilega út í auglýsingunum? alltaf þegar ég sé kött svolgra í sig whiskas eða hvað sem það heitir langar mig að smakka? ætli þetta sé alslæmt?

kær kveðja,

einn sem hefur ekkert að segja

» 46 hafa sagt sína skoðun

30.01.2005 20:42:02 / atli

confessions...

Niki er svalasta nunna sem ég þekki...

og hello kitty er hoot



» 52 hafa sagt sína skoðun

14.12.2004 19:40:56 / atli

The Cure - There is no if...


Remember the first time I told you I love you -
It was raining hard and you never heard -
You sneezed! and I had to say it over
'I said I love you,' I said... you didn't say a word
Just held your hands to my shining eyes
And I watched as the rain ran through your fingers
Held your hands to my shining eyes and smiled as you kissed me...

'If you die,' you said, 'so do I,' you said...
And it starts the day you make the sign
'Tell me I'm forever yours and you're forever mine
Forever mine...'

'If you die,' you said, 'So do I,' you said...
And it starts the day you cross that line
'Swear I will always be yours and you'll always be mine
You'll always be mine
Always be mine...'

Remember the last time I told you I love you -
It was warm and safe in our perfect world -
You yawned and I had to say it over
'I said I love you,' I said... you didn't say a word
Just held your hands to your shining eyes
And I watched as the tears ran through your fingers
Held your hands to your shining eyes and cried...

'If you die,' you said, 'So do I,' you said...
But it ends the day you see how it is
There is no always forever... just this...
Just this...

'If you die,' you said, 'So do I,' you said
But it ends the day you understand
There is no if... just and

There is no if... just and

There is no if...

Úff, ég er fáránlega mikill sökker fyrir ástarlögum.. já ég sagði það..
ræð ekki við það. Þetta lag með Cure er gott dæmi um slíkt lag.
Þetta er á hinni vanmetnu Bloodflowers sem ég mæli með að allir tjekki á.

» 81 hafa sagt sína skoðun

09.12.2004 19:27:56 / atli

Dimebag Darrell - 1966 - 2004

Ég er orðlaus. Þegar ég vaknaði biðu mín skilaboð sem sögðu að ein af hetjunum mínum, gítarleikarinn í einni af minni uppáhladsböndum, Dimebag Darrell væri látinn. Ég bjóst first við að þetta væri einhver leiðinda misskilningur en þegar ég tjekkaði betur á þessu fékk ég staðfestingu. Hann var að spila með núverandi hljómsveitinni sinni, Damage Plan, þegar óður maður stökk upp á svið og skaut hann nokkrum skotum í hausinn. Ég var algjörlega dofinn í allan dag, blikkaði varla augunum. Ég var búinn að virða og dá þennan mann í frá því í grunnskóla. Hann var algjör snillingur á gítarinn og ein mesta rokkstjarna í lifnaði sem ég veit um... hann átti strippklúbb með bróðir sínum og var með sundlaug í laginu eins og uppáhaldsbjórinn hans í garðinum sínum. Hvíl í friði félagi.

meistari

"Dimebag" Darrell Abbot
1966 - 2004


» 56 hafa sagt sína skoðun

08.12.2004 00:04:34 / atli

æ já

Ég hló endalaust mikið þegar DV birti umfjöllun um ungfrú ísland síðast. Þá var svona hópmynd af stelpunum og svona lítið setning frá þeim öllum. Mig grunaði alltaf að DV væri soldið að spila með stelpurnar með því að taka viðtal við þær allar og taka svo algjörlega random steningu og láta innan gæsalappa fyrir ofan höfuðið á þeim. Rétt eins og þetta væri það eina sem þær hefðu að segja. Setningar eins og "Gulur er flottur litur," "ég sá einu sinni geysi" og "idolið er æði." voru þarna á meðal og var þetta sett upp eins og þær væru algjörar gufur. Nota bene þá þekki ég nokkrar stelpur sem hafa tekið þátt í svona keppnum og þær eru ekki allar gufur... þó margar séu það. En ok... ég hló mikið af þessu en einhvern vegin var ég ekki viss um hvort þetta væri djók eða ekki.

Um síðustu helgi opnaði ég DV og sá þá umfjöllun um herra ísland. ó hvað ég hló. Þegar ég var búinn að lesa setningar eins og "Diesel er bara flottast." "ég elska allt rautt" og "ég versla stundum soldið mikið" vissi ég að Dv er pottþétt með það markmið að fokka í keppendum þessara keppna. Taka greinagott viðtal við alla og kippa svo einhverju nógu fáránlegu úr. Þessar setningar eru nátturlega ekkert vitlausat inni í málsgrein, en þegar þær standa einar hljóma þær asnalega... það er staðreynd og DV veit það... aaallt í nafni skemmtanagildis.. amen!


» 0 hafa sagt sína skoðun

06.12.2004 04:03:40 / atli

Gagnrýni

Egils Malt & Appelsín. Semsagt blandað í dósum.

Það fyrsta sem ég tek eftir er að umbúðurinar eru mjög smekklegar. Litirnir sem notast er við eru appelsínugulur, sem er augljóslega liturinn á appelsíni og brúnn, en eins og allir vita er Malt brúnt. Mjög klever.

Ég hellti drykknum í glas til þess að ná fram réttu bragði. Ég varð fyrir smá vonbrigðum með fyrsta sopann. "hmmm" hugsaði ég. "Þetta er nú ekki alveg eins gott og ölið sem ég blanda hver jól." Það er eins og einhver ferskleiki tapist við að geyma þetta blandað í dósum. Bragðið er ekki nærri því eins gott og þegar maður blandar sjálfur og er það miður. Bragðið er þó, eins og við mátti búast, mjög gott.

Niðurstaða:
Bragð: B
Fylling: B+
Umbúðir: A
Lokaeinkun: B+


» 97 hafa sagt sína skoðun

02.12.2004 02:11:47 / atli

músik minningar...

Það er svo magnað hvernig maður getur tengt tónlist við minningar og öfugt. Maður á það alltaf til að nauðga algjörlega lagi, lögum eða jafnvel heilu plötunum. Mínar fyrstu minningar í barnæsku eru þegar ég lá á gólfinu í stofunni í Smáratúni 7 með eyrun við annan hátalarann inni í stofu hlustandi á Ladda á vínyl. Ég átti einhverjar 3-4 plötur með honum, kunni alla textana og var óhræddur við að syngja með.

Næsta minning mín er ég inni í sömu stöfu með live diskinn með Pantera í höndunum. Halli frændi minn hafði bent mér á þessa stórkostlegu þungarokksveit. Ég man eftir því í 9. bekk þegar ég reyndi að fá alla til að hlusta á þetta en enginn var til í tuskið. Haha. enginn var nógu harður! úff...

Næst man ég eftir mér á Sauðárkróki að uppgvöta System of a Down sem ég hélt að einhverjum ástæðum að væri eldgömul hljómsveit. Ég botnaði ekkert í því afhverju bróðir minn kannaðist ekkert við þá. Eftir að ég kannaði málið komst ég að því að þeir voru nýjir á nálinni. þetta var sumarið '99 minnir mig. Við splæstum saman í gripinn ég og Halli. Hann fékk bæklinginn og diskinn skrifaðann og ég orginal diskinn. Síðan skelltum við okkur á rúntinn, pikkuðum upp stelpur og reyndum að vera töff.

Nú erum við stödd á selfossi. Ég var nýbúinn að kaupa Origin of symmetry með Muse. Hafði heyrt að þetta væri gott band og var aðeins búinn að fá að heyra í fyrsta disknum. Ég var á leiðinni keyrandi til mömmu þegar ég setti hann fyrst í og hlustaði á hann aftur og aftur alla leiðina. 350 km hafa aldri verið eins fljótir að líða.

Sumarið eftir Muse uppgvötunina keypti ég mér Weezer á 2 á 2000. Ég var með hann í bílnum allt sumarið og tók alltaf smá rúnt eftir vinnuna í mjólkurbúinu og man ég sérstaklega eftir vel eftir peysulaginu eða sweater song. Þessi diskur náði alltaf að vekja mig almennilega á leiðinni í vinnuna. Bjargaði sumrinu.

Næsta minning mín er ekkert sérstaklega góð. Sumarið 2003 lá ég með slökkt ljósin inn í herbergi. Sængin var yfir hausnum á mér og Lucky með Radiohead var á repeat. Þarna var kærastan nýbúin að svíkja mig illilega og ég skellti olíu á eldinn með því að hlusta á Lucky og Exit Music(for film) til skiptis heila helgi. Bad times...

Það eru miklu fleiri minningar sem ég man bara ekki í augnablikinu. Ég skelli part 2 af þessu þegar ég næ að grafa eitthvað uppúr þessum ansi gloppótta haus mínum.

Eiga fleiri svona minningar?


» 70 hafa sagt sína skoðun

30.11.2004 23:47:23 / atli

i am erica

Einu sinni var ég alltaf pirraður útaf þjóðernisrembingnum í ameríkönum. Ég hef hins vegar náð að snúa þessum pirringi algjörlega upp í húmor. Ég meina þessi rembingur er á hverjum degi í sjónvarpinu, ef ég væri alltaf jafn pirraður væri ég sjálfsagt búinn að drekkja mér í klósetti. Núna finnst mér þetta bara bráð fyndið. Gott dæmi um tiltekinn rembing er Jay Leno. Í þættinum hans í kvöld voru einhverjir tugir hermanna, bandarískir að sjálfsögðu. Fyrsti gestur þáttarins var Djúlí Skardína. Hún er svona dýratemjari og kom á sviðið með allskyns fáránleg dýr. Hermennirnir voru nokkuð rólegir þangað til hún kom með THE AMERICAN BALD EAGLE á sviðið. Ég hélt að allt ætlaði um koll að keyra. Hermennirnir gjörsamlega trylltust og öskruðu JÖÖÖÖ!! að öllu afli. Fuglinn breiddi síðan út vængjunum og horfði tignarlega í salinn... ekki var það eitthvað til að minnka lætinn. Þetta var svo algjörlega toppað þegar Djúli sagði: "this is for you guys." Þá lá við að ég táraðist, svo mikill var tilfinningahitinn.


» 43 hafa sagt sína skoðun

29.11.2004 21:07:29 / atli

Jólin.. tralalala úff

Ég er ekki alveg að nenna að fá jólin. Í fyrsta lagi langar mig ekki að eyða öllum peningunum mínum í gjafir. Já, ég er þetta.. uhh vondur? nei! eigingjarn! ég er þetta eigingjarn. okokok það er voða gaman að gefa gjafir og allt en það er ofmetið. Það er örugglega rosa gaman ef maður á nóg af peningum en ef maður ef maður veður ekki í þeim hugsar maður alltaf  um hvað maður hefði geta keypt sér fyrir peninginn.

Svo er það tónlistin. Ég vinn á stað þar sem jólastjarnan er blöstuð daginn út og daginn inn. Þar syngur Laddi í öðruhverju lagi og allt er voða gott og blessað. Leiðinlegust þykir mér þessi nýju jólalög frá í svörtum fötum og á móti sól. Lagið með ÁMS er eitthvað það leiðinlegasta sem ég hef á ævi minni heyrt. Jólin eru ekki svona dramatísk..úff.

Síðast vil ég nefna sparifötin. Það er örugglega það leiðinlegasta við þetta allt að þurfa að dressa sig upp og fara í jólaboð annanhvern dag. Ég er bara ekki týpan í það. Æ það þýðir ekki að væla meira útaf þessu. Jólin eru nú bara einu sinni á ári.

...Væntanlegt á atlablogg. nýr SJÓNARHÓLL!


» 42 hafa sagt sína skoðun

07.09.2004 14:10:50 / atli

hmmm

:| Mér leiðist. Það er leiðinlegt veður. Búú á það. Bless

» 4 hafa sagt sína skoðun

07.07.2004 22:39:42 / atli

Tattoooo

ooh... mig langar svo í annað tattú, hef bara ekki hugmynd um hvað eða hvernig ég á að fá mér. Einhverjar hugmyndir? plís?

» 48 hafa sagt sína skoðun

06.07.2004 01:25:31 / atli

Sjónarhóll 2. þáttur!

Þegar við skildum við krakkana á Sjónarhóli síðast voru þau Brad, Amber og Chloe að spjalla saman.

Brad: Sjáumst á leiknum stelpur.. og Amber ég mun skora eitt af línunni bara fyrir þig beib.
Amber: Æ dúlló dúll.

Brad skokkar burt, Amber horfir á eftir honum með söknuði en þó með einhverju þreyttu augnaráði.

Chloe: Brad er svo góður við þig, þið verðið örugglega kosin par skólans á ballinu á föstudaginn.
Amber: Æ látt'ekki svona.
Chloe: kommon, þið eruð vinsælasta og fallegasta parið í skólanum.
Amber: já reyndar... hehe okei.

Nýji strákurinn gengur framhjá og lítur snökkt í augun á Amber, hún horfir til baka með forvitnis gljáa í heiðbláum augunum.

Chloe: hvað var þetta?
Amber: Hvað var hvað?
Chloe: Uuuu... þetta augnkontakt við nýja gaurin, þú er svo mikil dræsa.. tíhíhí
Amber: Thíhí já

Við erum komin á leikinn, sjónarhóll er undir 25-26 gegn liði Græna Tanga.

Klappliðið: 1-2-3 hver er hýr? þjálfari tangana Siggi Týr!!
Siggi Týr: Pff..

DUNN DUMMDUNN DUMMMMMMMMMMM!!!!! er Siggi Týr hýr? Tapar lið sjónarhóls? er Amber skotin í nýja gaurnum? en hann í henni? komist að því í næsta þætti!


» 5 hafa sagt sína skoðun

04.07.2004 17:33:39 / atli

Landsmót Hestamanna

Skellti mér á Landsmótið um helgina. Jájá, það var nú eitthvað um ölvun á svæðinu en ég snerti ekki bakkus. Ég ákvað strax að setja mig í hlutverk siðgæðisvarðar. Þannig að ég var eiginlega alla hátíðina í því að hjálpa fólki sem var kannski búið að fá sér of mikið, ég hreinsaði líka rusl og brá mér oftar en ekki bakvið afgreiðsluborðin þegar það var mikið að gera í hamborgarasteikingum, þetta gerði ég að sjálfsögðu sjálfboðavinnu. Ég var ekki kýldur af stórum gaur í lopapeysu og ég lenti ekki í gamni slag við 5 brjálaðar stelpur sem vildu ekkert heitara en að sjá mig feigann.



p.s ekki ber að taka þessa frásögn alvarlega


» 2 hafa sagt sína skoðun

01.07.2004 00:15:21 / atli

Sjónarhóll 1. þáttur!

Jæja kæru lesendur, nú er komið að fyrsta þætti í unglingaþáttaseríunni Sjónarhóll.

Við erum stödd fyrir utan framhaldsskólann í litlum bæ á Austurlandi sem kallast Sjónarhóll. Bjallan hringir og krakkarnir þjóta út. Amber og Chloe rölta saman.

- Amber: Mikið var nýji strákurinn sætur
Chloe: En Amber, þú átt kærasta sem er fyrirliði handboltaliðsins. Afhverju myndiru segja svona um annan strák???
Amber: Ég var bara að segja að hann værir sætur, ó mæ gad! ég er ekkert að fara að byrja með honum tíhíhí...
Chloe: tíhí ókei

Brad, kærasti Amber kemur til stelpnana, hann heldur á handbolta.

Brad: Hæ stelpur, komiði á leikinn
- Chloe: Já auðvita, við erum í klappliðinu! (klappliðinu begmálar)

DUNNDUMM DUMM DUUMMMMM!!!! hvað gerir Brad núna? eru þær í klappliðinu? er Amber skotin í nýja stráknum? er pabbi Brads virkilega samkynhneigður bílasali? var einhver tilgangur með þessum þætti?

Meira í næsta þætti af unglingadramaþættinum Sjónarhóll



» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 4
Dagatal
febrúar - 2012
S M Þ M F F L
1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829
FyrriNæsti